Sigurjón Herbertsson fagnar núna 25 ára starfsafmæli sem skipstjóri á ferjunni Sæfara. Ferjan Sæfari siglir milli Dalvíkur og Grímseyjar allt árið. „Ég hóf störf árið 1996 þegar Örlygur Ingólfsson var skipstjóri. Þegar hann hætti árið 2000 tók ég við.“ Segir Sigurjón.
Yfir vetrartímann er siglt þrisvar til fjórum sinnum í viku en á sumrin fimm sinnum. Tvisvar í viku er siglt til Hríseyjar en sér þá Sæfari um þungaflutninga, á meðan ferjan Sævar flytur farþega og létta vöru.
Siglingin út í Grímsey tekur um þrjá klukkutíma en leiðin Dalvík-Grímsey er skilgreind sem B-siglingarleið. „Það er ekki alltaf auðvelt að sigla út í Grímsey, veðrið getur verið allskonar, en þetta hefur oftast gengið vel. Tvisvar sinnum hef ég fengið á mig brot og í annað skiptið þurfi ég að snúa við og fara í slipp á Akureyri. En ég hef aldrei orðið hræddur. Vissulega verður fólk oft sjóveikt og þótt það séu örugglega 40 ár síðan ég hef fundið fyrir sjóveiki, man ég alveg hvernig það er.
Sigurjón býr á Dalvík en segist hafa myndað sterk tengsl við Grímsey eftir allan þennan tíma. „Það er alltaf jafn fallegt að koma að Grímsey og eins að sigla inn Eyjafjörðinn. Leiðirnar eru svo fallegar, og breytilegar eftir árstíðum. Við sjáum oft hvali og gríðarlega mikið af lunda á sumrin. Ég hef alltaf jafn gaman af þessu – annars væri maður ekki að þessu. Ég held áfram á meðan heilsan leyfir.
Heimild: Akureyrarbær, ljósmynd: Anna M. Sigvaldadóttir.