Síðasti opnunardagur vetursins var í dag á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Upphaflega var ráðgert að lokadagurinn yrði í gær en veður var ekki með besta móti. Boðið var upp á grillaða hamborgara og góðgæti fyrir börnin.
L-7 verktakar tilkynntu einnig að þetta var þeirra síðasti dagur sem rekstraraðilar á svæðinu. Það verða því nýir aðilar sem taka við rekstrinum næsta haust.