Skíðavertíðinni er formlega lokið á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði þennan veturinn, en umsjónarmenn svæðisins tilkynntu þetta í gær á samfélagsmiðlum.
Skíðaveturinn á svæðinu einkenndist af litlu snjómagni en opnunardagarnir voru fleiri en búist var við miðað við magn af snjó sem kom á svæðið.
Miklar framkvæmdir voru á svæðinu í vetur sem tókust vel.