Skíðagönguhópur hjá skíðafélögunum í Fjallabyggð eru í æfingaferð í Nordseter í Noregi til 11 janúar.
Aðstæður eru frábærar nægur snjór og mikið frost. Á svæðinu eru um 2500 km af troðnu gönguspori.
Krakkarnir eru í stífum æfingum og svo eru skemmtilegar kvöldvökur þar sem er gripið í spil og leiki.
Foreldrar iðkenda sem eru með í för láta einstaklega vel af dvölinni og er stemmingin skemmtileg.
