Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg hefur fengið styrk úr menningar- og viðurkenningasjóði KEA til að byggja upp Krílaskóla sem er hugsaður fyrir 3-6 ára gömul börn til að fá fleiri til að stunda þessu frábæru íþrótt úti í fersku fjallaloftinu.
Elsti árgangur í Leikskóla Fjallabyggðar og 1.bekkur í Grunnskóla Fjallabyggðar stendur til boða að koma í Krílaskólann og fá lánaðan búnað hjá skíðafélaginu sem þau geta haft í allan vetur.
Börn á öllum aldri eru velkomnir í Skíðafélagið og taka þátt í æfingum og félagsstarfinu.
Sendu póst á sigloskiteam@gmail.com ef barnið þitt hefur áhuga á að æfa skíði (göngu eða svig).