Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 12.ágúst kl 10:00, en sama helgi og Fiskidagurinn mikli verður haldinn. Þrjár vegalengdir eru í boði og meðal annars skemmtiskokk 5-10 km, 29 km fjallahlaup og 17 km fjallahlaup. Ræst verður frá Siglufirði, Héðinsfirði og Ólafsfirði, allt eftir vegalengd. Skráning er hafin á Netskráning.is.
Drög að dagskrá fyrir laugardaginn 12.ágúst:
8-9:30 Afhending keppnisgagna (staðsetning nánar auglýst síðar)
10:00 Fjarðarhlaupið 29 km, ræst frá Sigló Hótel
11:00 Fjarðarhlaupið 17 km, ræst frá Héðinsfirði
12:00 Fjarðarhlaupið 5/10 km, ræst frá miðbæ Ólafsfjarðar.
29 km Fjallahlaup (17 ára og eldri)
Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 29 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 700 m hæð yfir sjó.
17 km Fjallahlaup (12 ára og eldri)
Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (700m) og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 17 km löng.
5/10 km skemmtiskokk
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
Vegalengdir og gjaldskrá í Fjarðarhlaupinu:
5/10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
17 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr. hækkar í 11.000 kr. 6.ágúst (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
29 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 17 ára og eldri, 12.000 kr. hækkar í 15.000 kr. 6.ágúst. (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)