Í kjölfar erfiðs rekstrar vegna óheppilegra veðuraðstæðna á skíðasvæði Skíðafélags Dalvíkur, hefur félagið sótt um aukinn styrk til reksturs skíðasvæðisins á Dalvík.
Þá hefur Skíðafélagið óskað eftir frekari styrk til byggingar troðarahúss þar sem það framkvæmdafé sem ætlað var til verksins er búið.
Framkvæmdin við húsið er ekki komin það langt að það sé komið í nothæft og varðveisluhæft ástand.
Forsvarsmenn skíðafélagsins hafa verið kallaðir á fund hjá Dalvíkurbyggð vegna málanna.