Skíðafélag Dalvíkur heldur opinn kynningarfund í Bergi menningarhúsi 14. júlí kl. 17:00, um þær framkvæmdir í landmótun sem fara fram í enda júlí.
Til stendur að lækka hólana sem fyrir eru í Barnabrekkunni til að hún nýtist betur sem kennslubrekka fyrir byrjendur. Að baki þeirri ákvörðun eru fjölmargar ástæður sem ræddar verða á fundinum og einnig gefst tækifæri til að spyrja út í framkvæmdirnar frekar.