Laugardaginn 17. maí verður Skarðsrennsli á Skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði. Vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin.  Tímataka fer fram með skeiðklukku. Bæði fyrir skíði og bretti geta tekið þátt.  Skarðsrennsli er 3 km. skíðabraut sem byrjar í fjallaskarði (Hrólfsvallardalur) fyrir ofan Bungulyftu og niður Miðbakka og yfir T-lyftusvæðið og til baka niður að Skíðaskála.

  • 1. sæti. Vetrarkort 2014-15 fyrir fimm. Út að borða á Kaffi Rauðku. Morgunverður  í Aðalbakaríi.
  • 2. sæti. Vetrarkort 2014-15 fyrir fjóra. Pizza á Allanum.
  • 3. sæti. Vetrarkort 2014-15 fyrir þrjá. Pizza á Torginu.

Sigló mars 2009 013