Baccalá bar og Ektafiskur á Hauganesi standa fyrir tveimur hraðskákmótum föstudaginn 10. ágúst næstkomandi. Bæði mótin verða á veitingastaðnum Baccalá bar.
Baccalá bar mótið verður haldið í þriðja sinn. Það hefst kl. 15.00 stundvíslega.
Tefldar verða 11 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Öllum er heimil þátttaka, en hámarksfjöldi keppenda er 30. Verðlaunafé er samtals 150.000 kr. og skiptist sem hér segir: 1. verðlaun kr. 50.000  – 2. verðlaun kr. 30.000 – 3. verðlaun kr. 20.000 – 4. verðlaun kr. 10.000 – 5.-12. verðlaun kr. 5.000 – Skákstjóri verður Sigurður Arnarsson.

Gert verður stutt hlé á mótinu svo keppendur geti gætt sér Fiskidagssúpu í boði mótshaldara. Væntanlegir keppendur geta skráð sig á skak.is eða hjá Ingimar Jónssyni (ingimarj@ismennt.is). Þeir 25 sem skrá sig fyrst fá rétt til þátttöku; aðrir fara á biðlista. Mótshaldarar taka frá fimm boðsæti.

Hraðskákmót 
Hraðskákmót Ektafisks verður haldið í fyrsta sinn. Það hefst kl. 22.00 um kvöldið, föstudaginn 10. ágúst. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er boðsmót. Öllum verðlaunahöfum á Baccalá bar mótinu er boðin þátttaka. Mótshaldarar munu bjóða 5-7 öðrum skákmönnum þátttöku í mótinu. Verðlaunafé er samtals 80.000 kr. og skiptist sem hér segir: 1. verðlaun kr, 30.000 – 2. verðlaun kr. 20.000 – 3. verðlaun kr. 15.000 – 4. verðlaun kr. 10.000 – 5. verðlaun kr,.  5.000.  Ingimar Jónsson svarar fyrirspurnum um mótið (ingimarj@ismennt.is).