Kerti brenndu nokkrar rafsnúrur í sundur í kirkjugarðinum í Ólafsfirði yfir jólin en þar eru nýir ljósakrossar og raflagnir.  Eftir aðfangadag var slokknað á nokkrum krossum og aðrir 15 blikkuðu vegna sambandstruflana.  Félagar í Rótarýklúbb Ólafsfjarðar fóru því í viðgerð á nokkrum krossum og rafsnúrum vegna þessa bruna sem varð.  Þá voru greniskreytingar festar á krossana, en það er ekki leyfilegt og þurfti klúbburinn að hafa aukið eftirlit vegna þessa yfir hátíðirnar.

Slökkvilið Fjallabyggðar hefur einnig varað við sinuhættu í kirkjugarðinum á Ólafsfirði er fólk beðið um að fara afar varlega með kerti og kertaskreytingar.