Fyrir nokkru síðan gengu iðkendur Skíðafélags Siglufjarðar Skíðaborg í hús á Siglufirði og söfnuðu áheitum hjá íbúum fyrir árlega Símanúmeramótið. Áheitin tengdust nafni og símanúmeri íbúa og var þátttaka íbúa mjög mikil.
Á miðvikudaginn síðastliðinn fór svo mótið fram á Skíðasvæðinu í Skarðsdal þar sem iðkendur skíðafélagsins á öllum aldri tóku þátt. Þau skíðuðu braut fyrir hvert símanúmer. Þau fjögur símanúmer sem áttu bestu tímana fengu svo glaðning frá félaginu.
Þessir fjórir voru: Guðlaug Guðmundsdóttir, Bara Dögg Þórisdóttir, Auður Björnsdóttir og Guðmundur Gauti Sveinsson.
Meðfylgjandi mynd er af yngri iðkendum félagsins sem tóku þátt.
SSS greindi frá þessu á samfélagsmiðlum.