Í vikunni stóð Síldarminjasafnið á Siglufirði fyrir námskeiði fyrir safnafólk á Norðurlandi um varðveislu málverka, með stuðningi Safnaráðs. Námskeiðið var vel sótt og átti að fara fram í Salthúsinu á Siglufirði, en sökum illviðris og erfiðrar færðar var það á síðustu stundu fært í Menningarhúsið Berg á Dalvík.
Kennsla var í höndum Nathalie Jacqueminet málverkaforvarðar, sem fjallaði um öll helstu atriði sem hafa þarf að leiðarljósi við varðveislu málverka, en þau eru í eðli sínu flóknir og viðkvæmir safngripir og því mikilvægt að kynna sér varðveislu þeirra vel. Nathalie fór yfir hvernig skuli meta ástand listaverka og ganga frá þeim í geymslu sem og hvernig þau skuli búin til sýninga, meðal annars með ólíkum leiðum til upphengingar. Þá fengu þátttakendur að spreyta sig á því að ástandsmeta verk og hreinsa þau.
Heimild og myndir: sild.is

