Í gær var síðasti formlegi opnunardagurinn hjá á Síldarkaffi á Siglufirði þessa vertíðina. Í vetur verða ýmsir viðburðir á dagskrá auk þess sem tíminn verður nýttur til ýmissa viðhaldsverkefna. Hægt er að bóka veislur, fundi og viðburði og einnig verður jólahlaðborð og síldarnámskeið síðar í vetur.
Síldarminjasafnið á Siglufirði er opið samkvæmt samkomulagi í vetur þar til skipulögð opnun tekur gildi á ný 1. maí 2026.
Hægt er að bóka heimsóknir í vetur með tölvupósti á netfangið safn@sild.is.
