KEA úthlutar styrkjum
Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, afhenti síðdegis í dag styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 79. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum. Auglýst var eftir umsóknum og barst 141 umsókn. Veittir voru 36 styrkir, samtals að fjárhæð 6 milljónir króna.
Almennir styrkir, styrkupphæð kr. 150.000,-.
- Aflið samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, til reksturs félagsins.
- Samkór Svarfdæla, til að gera dagskrá um ævi Jóhanns Svarfdælings.
- Leikfélag Húsavíkur, til að varðveita og skrásetja sögu leikfélagsins.
- Geðlist, til að kaupa verkfæri til listsköpunar.
- Útgerðarminjasafnið á Grenivík, til að ganga frá bílastæðum.
- Hörður Geirsson, til að taka myndir á gler- og álplötur og gefa út ljósmyndabók.
- SÍMEY/Fjölmennt, til að halda hátíðina List án landamæra.
- Leikfélag Hörgdæla, til að skrifa leikrit um Djáknann frá Myrká.
- Slökkvilið Siglufjarðar, til að gera upp fyrsta slökkvibíl Siglufjarðar
- Listvinafélag Akureyrarkirkju, til að kaupa flygil.
- Kór Glerárkirkju, til tónleikahalds.
Ungir afreksmenn, styrkupphæð kr. 125.000,-.
- Brynjar Leó Kristinsson, skíðaganga.
- Gunnar Björn Jónsson, söngur.
- Ævar Ingi Jóhannesson, knattspyrna.
- Arnar Geir Ísaksson, skíði.
- Ævarr Freyr Birgisson, golf.
- Sveinborg Katla Daníelsdóttir, taekwondo.
- Gísli Björgvin Gíslason, leiklist.
- Grétar Skúli Gunnarsson, kraftlyftingar.
- Ómar Smári Skúlason, íshokkí.
- Haukur Fannar Möller, taekwondo.
- Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, golf.
- Agnes Eva Þórarinsdóttir, efnafræði.
- Benedikt Rúnar Valtýsson, blak.
- Sigrún Mary McCormick, fiðluleikur.
Íþróttastyrkir, styrkupphæð kr. 200.000,-.
- Karatefélag Akureyrar, til að kaupa dýnur.
- Íþróttafélagið Völsungur – Skíðagöngudeild, til að standa fyrir 60 km skíðagöngu.
- Ungmenna- og Íþróttasamband Fjallabyggðar, til að halda vetrarleika.
- Hjólabrettafélag Akureyrar, til að opna innanhúss-hjólabrettaaðstöðu.
- Ungmennafélagið Smárinn, til að kaupa búnað.
- Fimleikadeild UMFS, til áhaldakaupa.
- Golfklúbbur Akureyrar, til uppbyggingar á æfingasvæði klúbbsins.
Þátttökuverkefni:
- Iðnaðarsafnið á Akureyri, kr. 250 þúsund, til að setja upp upplýsingaspjöld.
- Síldarminjasafn Íslands, kr. 250 þúsund, til að endurgera verkstæðishús gamla Slippsins á Siglufirði.
- Jakob Björnsson fh. óstofnaðs útgáfufélags, kr. 250 þúsund, til að rita og gefa út Sögu starfsmannafélags verksmiðja Sambandsins.
- Gamli bærinn Öngulsstöðum, kr. 500 þúsund, til uppbyggingar á gamla bænum á Öngulsstöðum.