Fjölskylduhátíðin Síldarævintýrið á Siglufirði verður haldin dagana 30. júlí til 2. ágúst 2026. Undirbúningur hátíðarinnar er í fullum gangi en í ár eru 35 ár síðan fyrsta Síldarævintýrið var haldið á Siglufirði.
Hátíðin verður með svipuðu sniði og síðustu ár, og verður öll barna- og unglingadagskrá ókeypis fyrir alla.
Pétur Jóhann Sigfússon mun þjófstarta Síldarævintýrinu miðvikudaginn 29.júlí á Kaffi Rauðku.
Dagskrá:
Fjölskyldugrill, hoppukastalar, Leikhópurinn Lotta, Hoppland, Hljómsveitin Ástarpungarnir, flugeldasýning, síldarsöltun, skrúðganga ásamt brennu, froðufjör, fornbílasýning, Bjórleikar Seguls 67, síldarball ásamt mörgu fleiru.
Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.