Vegurinn milli Siglufjarðar og Ketiláss er lokaður vegna snjóflóða sem féllu á veginn í nótt. Að sögn Vegagerðarinnar féllu að minnsta kosti tvö flóð á veginn, en þau eru ekki stór.
Veginum var strax lokað, en enginn var þarna á ferð þegar spýjurnar fóru yfir veginn. Þungfært er á milli Ketiláss og Hófsóss, en mokstur stendur yfir.
Nánari vegaupplýsingar hjá Vegagerðinni hér.