Hin vinsæla fatabúð Siglósport á Siglufirði lokar föstudaginn 12. október en fram kemur í tilkynningu að ætlunin sé að endurnýja gólfefni og annað í versluninni. Verslunin stefnir að því að opna sem fyrst aftur en ekki er nein ákveðin dagsetning í því samhengi.