Tískuvöruverslunin Siglósport á Siglufirði fagnar nú 10 ára afmæli með núverandi eigendum, en saga verslunarinnar nær yfir 30 ár á þessu sama nafni. Verslunin einnig með nýja vefverslun. Siglósport býður upp á fjölbreytt úrval af tískufatnaði og íþróttafatnaði bæði fyrir dömur og herra.
Eigendaskipti urðu á búðinni 16. ágúst 2014, en Rut Hilmarsdóttir og Brynjar Harðarson eignuðust þá verslunina og er Rut verslunarstjórinn.
Verslunin ætlar að loka kl. 16:00 í dag til að fagna afmælishátíðinni, en opnar á morgun kl. 11:00.