Golfklúbbur Akureyrar hefur tilkynnt að SiglóGolf völlurinn á Siglufirði hafi verið lokað fyrir veturinn eftir ánægjulegt golfsumar. Völlurinn var opinn í alls 128 daga, sem telst einstaklega gott miðað við aðstæður og með því besta sem gerist. Mikil vinna var lögð í umhirðu og uppbyggingu vallarins á tímabilinu. Nú á haustmánuðum var farið í drenvinnu á fyrstu brautinni og verður gaman að sjá hvernig útkoman á því verður.
Völlurinn naut mikilla vinsælda meðal félagsmanna GKS og gestakomur voru einnig töluverðar yfir sumarið. Ljóst er að þessi einstaka golfperla veitti fjölmörgum kylfingum ánægjulegar stundir í sumar.