Síðasti heimaleikur sumarsins hjá KF er hjá meistaraflokki félagsins í 2. deildinni gegn Gróttu frá Seltjarnarnesi laugardaginn 15. september klukkan 14:00 og fer hann fram á Ólafsfjarðarvelli. Okkar menn í KF eru í öðru sæti deildarinnar en Gróttumenn í því tíunda. Fyrri leikur liðanna í sumar lauk með jafntefli 1-1 en þá jafnaði KF leikinn á síðustu mínútu leiksins úr víti en það var Þórður Birgisson sem skoraði markið.
Við hvetjum alla til þess að fjölmenna á þennan leik og styðja við bakið á strákunum í baráttunni á toppi deildarinnar. Mætingin um síðustu helgi á bæði leik 3. flokks og meistaraflokks var góð og væri gaman að toppa þá frammistöðu og fá alvöru mætingu á þennan stórleik.
Stefnt er að því að hressir áhorfendur stjórni klappliði KF og hvetjum við alla til að taka þátt í því.
Allir á völlinn og áfram KF!
Texti: Innsent efni /KFbolti.is/Þorvaldur Þorsteinsson