Skógræktarfélag Siglufjarðar ætlar að setja upp grillhús yfir grillið sem stendur í lundinum við Leyningsá á Siglufirði. Húsið verður svipað að formi eins og er á tjaldsvæðinu á Ólafsfirði.
Með verkefninu verður aðstaða bætt til muna fyrir þann fjölda gesta er koma í skógræktina á Siglufirði á ári hverju.
Fjallabyggð styrkir verkefnið um hálfa milljón króna.