Á vef Hörgársveitar er greint frá því að selur hafi gengið upp ána Hörgá.

Brugðist var við skjótt enda er getur selur valdið miklum usla í lífríki árinnar og truflað veiðar verulega. Selurinn var skotinn á færi og hræið fjarlægt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem vart verður við seli í ánni en reynt er að lágmarka þann skaða sem þeir óhjákvæmilega valda.

Almennt er selur ófriðaður í ósum lax og silungsveiðiáa.