Sápuboltinn í Ólafsfirði er ein af þessum hátíðum sem heimamenn standa fyrir og hefur vaxið ár frá ári. Sápuboltinn verður aftur á dagskrá í sumar og nú helgina 18.-20. júlí. Árlegir gestir ættu því að setja þessa dagsetningu í dagatalið og fara athuga með gistingu fyrir þá sem ekki eru í tjaldi. Þá er gott að fara huga að búningum liðsins.
Undirbúningur stjórnar Sápuboltans er í fullu gangi og unnið er að leggja lokahönd á dagskrá mótsins. Skráning opnar innan skamms og borgar sig að fylgjast vel með skrá sig tímanlega, því uppselt hefur verið á mótið undanfarin ár.
