Vaxtasamningur Eyjafjarðar gerði í síðustu viku fyrstu tvo samninga ársins við Hafbor ehf. og Dexta orkutæknilausnir ehf.

Hafbor ehf. er nýsköpunarfyrirtæki á Siglufirði sem hefur hannað nýja gerð af akkerum fyrir fiskeldi og flotbryggjur. Styrkur var veittur vegna markaðssetningar í Bandaríkjunum.  Framkvæmdastjóri Hafbor er Ingvar Erlingsson. Einnig var gengið frá samningi milli VaxEy og Dexta orkutæknilausna ehf. um verkefni til að fullhanna færanlegan kornþurrkara sem nýtir innlenda orkugjafa.  Framkvæmdastjóri Dexta orkutæknilausna ehf. er Gauti Hallsson.

2013-01-30-02.15.36

Hér má sjá Baldvin Valdimarsson starfsmann Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar og Gauta Hallsson  framkvæmdastjóri Dexta orkutæknilausna ehf.

Heimild og mynd: www.afe.is