Samkaup hefur dregið til baka lóðaumsókn í miðbæ Siglufjarðar þar sem til stóð að byggja upp verslunarkjarna.  Er þetta vegna þeirra neikvæðu umræðu sem hefur um þetta verkefni um mögulega uppbyggingu á svæðinu.

Samkaup hefur þó einnig tilkynnt að verði breytingar á almennri afstöðu til verkefnisins þá eru þeir tilbúnir að endurskoða ákvörðun sína.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst bæjarstjóra Fjallabyggðar 26. mars og var erindið tekið fyrir á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar í gær.