Formaður stýrihóps um gerð Héðinsfjarðarganga hefur lagt til við sveitarfélagið Fjallabyggð að bæjarfélagið taki við frágangi á svæðinu við Héðinsfjarðargöng. Náðst hefur samkomulag um fjárupphæð til að ljúka frágangi við Kleifartipp.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur þá samþykkt tillögu er varðar uppgjör og frágang á Kleifartipp.