Vegagerðin hefur fyrir hönd ríkisins samið við flugfélagið Norlandair um að fljúga fjórar flugferðir í viku milli Húsavíkur og Reykjavíkur á tímabilinu 16. desember 2024 til 15. mars 2025.

Unnið er að undirbúningi en nánari upplýsingar verður hægt að finna á heimasíðu flugfélagsins innan skamms, www.norlandair.is

Flugleiðin er styrkt til að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á flugleiðinni á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Áætlun Reykjavík – Húsavík – Reykjavík

 

Gildistími desember 2024 – mars 2025

Mið   Brottför Lending
FNA 580
RKV-HZK 07:30 08:20
FNA 581 HZK-RKV 08:50 09:40
FNA 582 RKV-HZK 15:30 16:20
FNA 583 HZK-RKV 16:50 17:40
Fös   Brottför Lending
FNA 580
RKV-HZK 15:30 16:20
FNA 581 HZK-RKV 16:50 17:40
Sun   Brottför Lending
FNA 580
RKV-HZK 16:10 17:00
FNA 581 HZK-RKV 17:30 18:20