Samherji hefur gengið frá kaupum á 49% eignarhlut í norska framleiðslufyrirtækinu Berg LipidTech AS í Álasundi. Félagið framleiðir lýsi fyrir heildsölumarkað, einkum úr þorskalifur og laxi, og selur afurðir sínar um allan heim. Kaupin skapa tækifæri til frekari fullvinnslu aukaafurða Samherja samhliða því að efla samkeppnishæfni Berg LipidTech í gegnum stöðugra framboð á gæðahráefni. Með fjárfestingunni kemst Samherji lengra í virðiskeðju sjávarútvegsins.
Kaupsamningurinn hefur þegar verið undirritaður og eru kaupin fullfrágengin. Samhliða kaupum á 49% hlut í Berg LipidTech eignast Samherji kauprétt að eftirstandandi hlutafé félagsins.
Berg LipidTech AS er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í Álasundi sem er hjarta nýsköpunar og skipasmíða í norskum sjávarútvegi. Félagið var stofnað 1993 og býr því að áratugareynslu í sinni grein. Berg LipidTech AS framleiðir meðal annars lýsi og aðrar fiskiolíur úr þorski, ufsa, laxi, túnfiski og ansjósum. Hefur félagið fest sig í sessi sem áreiðanlegur birgir á heildsölumarkaði fyrir framleiðendur fæðubótarefnis.
Núverandi eigendur og helstu stjórnendur Berg LipidTech AS munu starfa áfram hjá félaginu og verða starfsstöðvar þess óbreyttar. Samherji sem minnihlutaeigandi mun tilnefna stjórnarmenn og veita stjórnendum stuðning við uppbyggingu félagsins. Unnið verður eftir sameiginlegri viðskiptaáætlun sem grundvallast á því að nýta styrkleika félagsins til frekari vaxtar og uppbyggingar.
Heimild: samherji.is.