Sæunn Gísladóttir skipar 3. sæti hjá Jafnaðarmannafélagi Fjallabyggðar og óháðum.
Sæunn fór í framboð vegna þess að hún vill stuðla að því að Fjallabyggð sé spennandi búsetuvalkostur fyrir alla íbúa landsins.
Sæunn er 32 ára og býr á Siglufirði, hún er gift Agli Sigurðarsyni Edwald, tölvunarfræðingi, og eiga þau dæturnar Snæfríði (4 ára) og Sóllilju (1 árs), leikskólastelpur á Leikskálum.
Sæunn er hagfræðingur með MA í þróunarfræði og starfar sem sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri þar sem hún sinnir meðal annars byggðaþróunarrannsóknum, hún er einnig fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Fyrsta skáldsaga hennar Kúnstpása kom út vorið 2025 og gerist í ónefndum bæ á Norðurlandi.
Í frítíma sínum stundar hún útivist, ferðalög og les góðar bækur og skrifar um þær á vefsíðu Lestrarklefans.
Uppáhaldsstaður Sæunnar í Fjallabyggð er skógræktin á Siglufirði.