Gamlársdagshlaupið fór fram á Siglufirði í dag. Rúmlega 30 manns tók þátt og var hlaupið frá Siglufjarðarkirkju og inn að stílfu í Hólsdal og aftur til baka. Þrír slökkviliðsmenn tóku þátt í hlaupinu og tveir þeirra gerðu gott betur og voru í reykköfunartækjum. Nokkrir þátttakendur mættu í kósýbúningum eða jólapeysum og gerði það hlaupið líflegra.
Slökkvilið Fjallabyggðar tók þessar myndir sem fylgja fréttinni.
