Í dag fimmtudaginn 17. apríl eru 70 ár frá því að Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar var stofnaður. Á þessum 70 árum hefur margt verið gert og ýmislegt gerst, flest samfélaginu til heilla. Má nefna að á starfstímanum hafa verið haldnir 3.315 fundir. Þau verk sem klúbburinn er þekktastur fyrir er eflaust vinnan við ljósakrossana í kirkjugörðum Ólafsfjarðar, en þeirri vinnu hefur verið sinnt frá árinu 1992.
Félagar í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar hafa séð um umhirðu á skíðstökkpallinum í Ólafsfirði, undanfarna áratugi og er málningarvinna framundan á þessu ári.
Nú hin seinni ár hefur klúbburinn einbeitt sér að því að styrkja hin ýmsu málefni í samfélaginu og hefur athyglin beinst einkum að yngri kynslóðinni í auknu mæli.
Áður fyrr var klúbburinn þekktur fyrir hið öfluga skiptinemastarf sem fram fór.
Rótarýhreyfingin var eingöngu fyrir karla allt þar til dómur féll í Bandaríkjunum um þátttöku kvenna árið 1989. Fyrsta konan í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar kom nokkru seinna eða árið 2001.
Félagar í klúbbnum eru nú 28 á breiðu aldursbili, eða frá 38 ára til 96 ára. Sjö konur 21 karl, en nú hafa konur aldrei verið fleiri.
Fyrsta stjórn klúbbsins:
Forseti- Ingólfur Þorvaldsson prestur.
Varaforseti- Magnús Gamalíelsson útgerðarmaður
Ritari- Jóhann J. Kristjánsson héraðslæknir
Stallari- Randver Sæmundsson hótelstjóri
Fyrrverandi forseti- Sigurður Guðjónsson bæjarfógeti
Gjaldkeri- Guðmundur Jóhannsson bæjargjaldkeri
Endurskoðandi- Sigvaldi Þorleifsson kaupmaður
Vara endurskoðandi- Björn Stefánsson kennari.