Rögnvaldur Harðarson hefur verið ráðinn tímabundið til árs í stöðu sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar.
Rögnvaldur hefur undanfarin ár gegnt störfum byggingafulltrúa og verkefnastjóra framkvæmda hjá Þingeyjarsveit. Rögnvaldur er byggingafræðingur B.Sc. frá Vitus Bering í Danmörku og húsasmíðameistari, auk þess sem hann hefur löggildingu í gerð eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga. Hann hefur umfangsmikla reynslu af eftirliti með verklegum framkvæmdum í gegnum starf sitt sem sérfræðingur brunabótamats hjá HMS á árunum 2013-2023 ásamt mikilli þekkingu á opinberri stjórnsýslu. Einnig hefur Rögnvaldur starfað við hönnun, byggingastjórn og framleiðslu.
Rögnvaldur mun áfram sinna starfi byggingafulltrúa meðfram starfi sviðsstjóra.
