Samkvæmt ársreikningi Fjallabyggðar 2024 er rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta jákvæð um 63,9 millj. kr. sem er talsvert betra en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir en áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að upphæð 0,6 millj. kr.

Langtímaskuldir sveitarfélagsins Fjallabyggðar við lánastofnanir nema 134,3 millj. kr. sem er með því lægsta sem gerist á landinu. Það þýðir um það bil 68 þús. krónur á hvern íbúa.

Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 148,7 millj. kr. en var um 81,7 millj. kr. árið 2023. Fjárfesting ársins nam 653,0 millj. kr. Handbært fé A- og B-hluta nam 239,9 millj. kr. í árslok og lækkar umtalsvert m.a. vegna framkvæmda á skíðasvæði í Skarðsdal og við vatnsveitu.

Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 4.918,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta 4.237,9 millj. kr.

Rekstur sveitarfélagsins var nokkuð stöðugur á árinu, líkt og undanfarin ár. Rekstur málaflokka var almennt innan fjárhagsáætlunar þrátt fyrir verðbólgu og aðra óvissuþætti.

Helstu frávik frá útgjöldum voru í málaflokknum umferðar- og samgöngumál eða um 20% og munar þar mestu um verulega gjaldaaukningu vegna snjómoksturs. Tekjur sveitarfélagsins voru nokkuð hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir, en það má helst rekja til aukinna framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Ársreikningur Fjallabyggðar 2024 fer í seinni umræðu í bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 15. maí nk.