Finnur Yngvi Kristinsson hefur sótt um fyrir hönd Rauðku ehf. leyfi til þess að loka fyrir umferð framan við Veitingastaðinn Hannes Boy og út fyrir strandblakvöllinn.
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur lagt til að gatan verði gerð að vistgötu á þessum kafla.
Vistgata
Vistgata er gata þar sem umferð gangandi vegfarenda og hægfara faratækja — eins og reiðhjóla, hjólaskauta eða hjólabretta — hefur forgang fram yfir umferð bíla. Venjulega er hraði takmarkaður við gönguhraða og gangandi vegfarendum, börnum að leik o.s.frv. er heimilt að nota götuna til jafns við bíla. Slíkar götur eru hannaðar með því augnmiði að minnka hraða bifreiða, t.d. með hraðahindrunum og með því að hafa bílastæði til skiptis öðrum hvorum megin götunnar.
Götunni var lokað s.l. sumar með þessu skilti.
Ljósmyndir: Héðinsfjörður.is