Jón Hrólfur Baldursson íbúi, bareigandi og aðalrakarinn á Siglufirði hefur óskað eftir rökum fyrir þeirri ákvörðun skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar að hækka hámarks umferðarhraða á þjóðveginum í gegn um þéttbýlið á Siglufirði úr 35 upp í 40 km/klst. þrátt fyrir að íbúar hafi ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna hraðaksturs.
Fjallabyggð svaraði því að umferðarlög tóku breytingum um síðustu áramót þar sem segir að umferðarhraði verði að standa á heilum tug. Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar tók þá ákvörðun að leggja til við Vegagerðina að hámarkshraði á þjóðvegi í þéttbýli verði 40 km/klst. Samhliða þeirri ákvörðun var ákveðið að gert yrði deiliskipulag af þjóðveginum í þéttbýli í samstarfi við Vegagerðina með umferðaröryggi og stýringu á umferðarhraða í huga.
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar bendir einnig á að við vinnslu deiliskipulags þá gefst íbúum kostur á að gera athugasemdir og koma með ábendingar.
