Fjallabyggð vinnur að því að gera tiltekt á svæðinu við fiskhjallana í Ólafsfirði, en gert er ráð fyrir að taka þurfi til á svæðinu með vinnuvélum. Verkið er viðamikið og hefur verið rætt að nýta hluta af efninu í brennu sem verður á Síldarævintýrinu á Siglufirði og á áramótabrennu í Ólafsfirði.
Áætlaður kostnaður fyrir þessa tiltekt er 3-5 milljónir og er áætlað að það taki um 10 daga.