Í tilefni að því að fimm ár eru frá því að Héðinsfjarðargöng voru opnuð boða Fjallabyggð og Háskólinn á Akureyri til ráðstefnu þar sem helstu niðurstöður rannsóknarinnar á áhrifum Héðinsfjarðarganganna á samfélögin á norðanverðum Tröllaskaga verða kynntar.
Ráðstefnan fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði föstudaginn 2. október næstkomandi. og stendur yfir frá kl. 14:00 – 17:00.

Dagskrá:

  • Ávarp: Hreinn Haraldsson Vegamálastjóri.
  • Þóroddur Bjarnason: Samgöngur og byggðaþróun. Samfélagsleg áhrif Héðinsfjarðarganga
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson: Stóðst umferðarspáin? Hvað má af henni læra?
  • Sonja Stelly Gústafsdóttir: Viðhorf til heilbrigðisþjónustunnar í kjölfar mikilla samfélagsbreytinga
  • Kjartan Ólafsson: Skammtímaáhrif Héðinsfjarðarganganna á mannfjöldaþróun
  • Andrea Hjálmsdóttir: Staða kynjanna fyrir og eftir opnun Héðinsfjarðarganga
  • Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar: Hvaða þýðingu hafa göngin haft fyrir Dalvíkurbyggð?
  • Steinunn María Sveinsdóttir, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar: Hvaða þýðingu hafa göngin haft fyrir Fjallabyggð?
  • Pallborðsumræður – Stjórnandi Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Héðinsfjörður