Sig­ur­jón Arn­órs­son og Hreiðar Ingi Eðvarðsson hafa verið ráðnir aðstoðar­menn Ingu Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra.

Sig­ur­jón hef­ur verið aðstoðarmaður Ingu frá ár­inu 2017. Hann er með BA gráðu í hag­fræði, heim­speki og stjórn­mála­fræði frá Há­skól­an­um á Bif­röst og M.Sc. gráðu í alþjóðaviðskipt­um frá Há­skól­an­um í Reykja­vík.

Hreiðar Ingi er lög­fræðing­ur að mennt og var áður fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Flokks fólks­ins.