Meirihluti bæjarstjórnar Fjallabyggðar hefur staðfest ráðningu nýs bæjarstjóra Fjallabyggðar og hefur Hafdís Huld Björnsdóttir störf 1. september 2026. Samkvæmt ráðningarsamningi fær Hafdís 2,5 milljónir í mánaðarlaun.
Hafdís var á meðal 22 umsækjenda eftir að staða bæjarstjóra var auglýst en tveir drógu umsóknir sínar til baka í ráðningarferlinu. Átta voru boðaðir í fyrsta viðtal og þrír í seinna viðtal. Ráðningarskrifstofan Intellecta sá um ráðningarferlið, frá auglýsingu til ráðningar og ferlið leitt af fulltrúa skrifstofunnar á öllum stigum. Umsækjendur fóru í gegnum hæfnismat og viðtöl þar sem á endanum Hafdís Huld skoraði hæst.
S-listi og H-listi mynda meiri hluta í Fjallabyggð og staðfestu þeir ráðninguna á 274. fundi bæjarstjórnar. D-listi minni hluta samþykkti ekki ráðninguna og bókuðu eftirfarandi:
“Fulltrúar D-lista telja sér ekki unnt að samþykkja ráðninguna á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þrátt fyrir ítrekaða beiðni hafa ekki verið lagðar fram rekjanlegar forsendur fyrir vali átta umsækjenda úr tuttugu og síðar þriggja umsækjenda í lokaumferð.
Jafnframt telja fulltrúar D-lista að fyrirliggjandi drög að ráðningarsamningi feli í sér veikari og óskýrari ákvæði um starfsskyldur bæjarstjóra, önnur störf og eigin atvinnurekstur en áður giltu. Ekki hafa verið veittar fullnægjandi skýringar á þessum breytingum. Almenn ákvæði í mannauðsstefnu eða öðrum stefnum sveitarfélagsins koma ekki að mati fulltrúanna í stað skýrra og bindandi ákvæða í ráðningarsamningi.
Afstaða D-lista felur ekki í sér dóm um hæfni þess umsækjanda sem lagður er til. Hún byggist á því að fulltrúar D-lista hafa hvorki fengið fullnægjandi gögn til að taka upplýsta og sjálfstæða ákvörðun um ráðninguna né fullnægjandi skýringar á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á ráðningarsamningnum.”
Meiri hlutinn bókaði eftirfarandi:
“Við fulltrúar H- og S- lista í bæjarstjórn hörmum að fulltrúar D- lista telji sér ekki fært að standa að baki ráðningu Hafdísar Huldar í starf bæjarstjóra Fjallabyggðar. Við teljum ráðningarferlið hafa verið faglegt, upplýsingum miðlað til oddvita minnihlutans reglulega í ferlinu og rökstuðningur Intellecta fyrir ráðningu Hafdísar liggur fyrir í meðfylgjandi gögnum auk rökstuðnings þeirra bæjarfulltrúa sem tóku þátt í ráðningarferlinu. Sá ráðningarsamningur sem hér liggur fyrir er að okkar mati mun hagstæðari fyrir sveitarfélagið Fjallabyggð en síðasti samningur sem hér er mikið til samanburðar. Auk þess teljum við þennan ráðningarsamning taka vel á þeim ákvæðum sem skipta máli varðandi hlutverk og skyldur bæjarstjóra.”