Píanókvartettinn Negla tók til starfa árið 2023 og samanstendur af fjórum ungum tónlistarkonum, þeim Sólveigu Steinþórsdóttur fiðluleikara, Önnu Elísabetu Sigurðardóttur víóluleikara, Hrafnhildi Mörtu Guðmundsdóttur sellóleikara og Þóru Kristínu Gunnarsdóttur píanóleikara.
Kvartettinn heldur tónleika í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík, laugardaginn 8. nóvember kl. 16:00. Miðasala er við hurð, verð 3500 kr. og 3000 kr. fyrir eldri borgara.
Kvartettinn hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum síðan þá, m.a. á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Hörpu, í Tíbrá í Salnum i Kópavogi, á Þjóðlagahátíð á Siglufirði og í Hofi á vegum Tónlistarfélags Akureyrar, auk þess að spila í hinum ýmsu skólum og á öldrunarheimilum höfuðborgarsvæðisins.
Á efnisskrá tónleikanna eru glæný verk, samin sérstaklega fyrir kvartettinn, eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Arngerði Maríu Árnadóttur. Einnig verður fluttur hinn ástsæli píanókvartett í g-moll eftir Johannes Brahms.
