Forsvarsmenn Sápuboltans í Ólafsfirði hafa sett í gang miðasölu fyrir mótið í sumar og einnig tilkynnt stór nöfn sem halda uppi stuðinu. Von er á Páli Óskari föstudaginn 18. júlí í Tjarnarborg í Ólafsfirði, en þar verður Palla-ball. Birnir kemur fram laugardaginn 19. júlí og Flóni mætir í fyrsta sinn á Sápuboltann og verður með ball í Tjarnarborg.

Hægt er að kaupa helgarpassa, miða á mótið, miða á böllin eða miða á stök böll.