öxnadalsheiði
Öxnadalsheiði lokaðist í morgun vegna árekstrar, en búið er að opna aftur fyrir umferðina.
Þarna hafði orðið árekstur er ökumaður bifreiðar hafði bakkað bifreið af vegslóða og inn á Hringveginn með þeim afleiðingum að bifreið sem á eftir kom var ekið á bifreiðina sem hafði verið bakkað inn á Hringveg við Grjótá.
Þrír aðilar voru fluttir með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akureyri með minniháttar meiðsl.
Önnur bifreiðin er óökufær eftir umferðarslysið. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi fyrst frá þessu.