Ákveðið hefur verið að aflétta óvissustigi á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ennþá eru legudeildir þéttsetnar og ekki er fullmannað í allar stöður en unnið er að því að leysa úr því. Einnig hefur starfsfólk lagt á sig umtalsverða aukavinnu svo tryggja megi þjónustu við skjólstæðinga Sjúkrahússins á Akureyri.

Þá er Sneiðmyndatækið komið í lag þannig að ekki verða truflanir á eða tafir á greiningu í tilfellum þar sem notkun þess skiptir höfuðmáli.

Þetta kemur fram á vef Sak.is.