Óvissustig er í gildi í Ólafsfjarðarmúla og á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu. Hálka, snjóþekja eða hálkublettir er á flestum leiðum á Norðurlandi en krapi er á Grenivíkurvegi.
Lélegt skyggni og erfið akstursskilyrði víða á heiðum um norðanvert landið í dag, og bætir í vind með deginum. Líklegt að færð spillist á fjallvegum, einkum eftir að þjónustu líkur norðvestantil á landinu í kvöld, t.d. á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Snarpar vindhviður, um 35 m/s, undir Eyjafjöllum snemma í fyrramálið og dregur úr vindi þar eftir kl. 09:00.