Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hafa ákveðið að fara á óvissustig Almannavarna vegna mikillar rigningar á Tröllaskaga og aukinnar skriðuhættu.
Vegagerðin hefur lokað Siglufjarðarvegi frá Hrauni að Strákagöngum vegna grjóthruns. Hjáleið er um Lágheiði. Viðbragðsaðilar hafa frá því snemma í morgun verið í ýmsum verkefnum þessu tengt. Áframhaldandi rigningaspá er á svæðinu til morguns.
Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af fundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra með aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra og Veðurstofu rétt í þessu. Almannavarnadeild fylgist áfram með stöðunni og verður í sambandi aðgerðarstjórn.