Kylfingurinn Ottó Leifsson vann það afrek að fara holu höggi á 9. holu í seinni hring á Sigló golf á Siglufirði í gær. Var þetta fyrsta hola í höggi hjá Ottó. Höggið slegið sex járni og var 128 metrar.
Sigló golf birti frétt um þetta ásamt mynd á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.
