Hefðbundin opnun er á öllum starfsstöðvum HSN 29. desember og 30. desember. Hjá HSN Akureyri er opið fyrir bráðaþjónustu dagana 24. – 26. desember og 31. desember-1. janúar. Engar lyfjaendurnýjanir eða almennar tímabókanir eru þessa daga.
Bóka þarf tíma fyrir komu í gegnum símanúmerið 1700.
Lokað er á öðrum heilsugæslustöðvum HSN frá kl. 12:00, dagana 24. desember – 26. desember og frá kl. 12:00, dagana 31. desember – 1. janúar.
Veitt er ráðgjöf vegna bráðra veikinda og slysa í síma 1700 yfir jól og áramót. Í neyð er fólki bent á að hringja í síma 112.