Fjallbyggð býður íbúum til opins íbúafundar í tilefni komandi sveitarstjórnarkosninga, mánudaginn 11. maí kl. 19:30 í menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði. Fundarstjóri er Ingvar Erlingsson. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og eiga samtalið við frambjóðendur. Léttar kaffiveitingar.
Fyrirkomulag fundar:
- Framsaga framboða: 6 mínútna framsaga hvers framboðs.
- Pallborð: Þrír fulltrúar frá hverju framboði sitja í pallborði og svara spurningum úr sal.
- Lokaorð: 3. mínútna lokaorð.