Opinn foreldra- og íbúafundur verður miðvikudaginn 9. apríl kl. 17:00 í matsal Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði.

Ræddar verða hugmyndir Vinnuhóps um betri leikskóla að breytingum á starfsumhverfi í Leikskóla Fjallabyggðar. Undanfarnar vikur hefur Vinnuhópur um betri leikskóla verið að störfum í Fjallabyggð.

Vinnuhópnum var falið að koma með breytingatillögur á núverandi skipulagi leikskólans, með það að leiðarljósi að styrkja til framtíðar faglegt og árangursríkt leikskólastarf og bæta stöðugleika og starfsumhverfi barna og starfsfólks í Leikskólum Fjallabyggðar. Hópurinn hefur þegar boðað til og setið vinnufundi með bæjarstjórn Fjallabyggðar, starfsfólki leikskólans og fulltrúum atvinnulífs í Fjallabyggð.

Nú boðar vinnuhópurinn til kynningarfundar fyrir íbúa Fjallabyggðar og hvetur foreldra leikskólabarna sérstaklega til að mæta á fundinn. Á fundinum verða hugmyndir hópsins kynntar og ræddar með það fyrir augum að fá sem best fram sjónarmið sem flestra.

Reiknað er með að fundurinn standi í eina klukkustund.